|
|
23.04.2007 17:57:17 / helgalara
Ég ákvað að hlíða henni Bryndísi frænku...hún sagði mér í skoðun
á seinasta bloggi að ég ætti að blogga um t.d. djammið okkar Ingu,
Frakklandsferðina hennar, hvaða skyrtu Kjartan var í í skólanum í
dag, að Aron sé nýbúinn í klippingu og að hún sé best!
Jæja there you go Bryndís mín.
Ég og Inga fórum á djammið sama fyrir svolítlu síðan...eiginlega
fyrir löngu síðan. Það var gaman.
Bryndís og fjölskylda fóru til frakklands...ég var ekki á
staðnum þannig að ég get hæglega bloggað um þá ferð. En ég veit að
Sunna, Óttar og Embla Sól fóru að heimsækja þau. Virkilega
gaman!
Kjartan var í grænni skyrtu í skólanum í dag. Hún var flott. Á
föstudaginn kom hann í nýrri peysu (ég hafði aldrei séð hana áður
þannig að hún hlítur að vera ný) hún var líka græn. Þar áður (áður
en hann mætti í grænu peysunni) var hann í túrkisbláu skyrtunni
sinni. Ég veit ekki hvernig ég veit þetta...það er örugglega bara
útaf því að þetta eru allt svo skemmtilegir litir sem skera sig út
úr "samfélagi kennarafata". Kennarar klæða sig alltaf svo
leiðinlega, allir nema Kjartan.
Aron er nýbúinn í klippingu. Það var voðalega gaman (að hans
sögn) og klippingin fer honum vel. Samt er ég að ljúga að ykkur því
að það er orðið langt síðan hann fór í klippingu. Hins vegar get ég
sagt ykkur að hann var nýlega að losna við spangirnar í efri góm.
Þvílík breyting!! Ég þekki hann varla án spangana.
Nú er komið lok á þetta þar sem listinn hennar Bryndísar er
búinn. Hún verður bara að gera lengri lista næst ef hún vill hafa
bloggið mitt lengra. En eins gott að ég endi þetta með seinastu
kröfunni!
Bryndís er best.
»
12.03.2007 19:25:41 / helgalara
omg kids ég bara verð að segja ykkur þessi helgi var bara ógisslega
sveitt og ég bra var alleg kreiiiiiiiisí feit á kantinum! zkomm á
föstudaginn hitti ég sigga rooster, jóa ble, sillu, sigga, bárð,
steinar og skomm ef ég er að gleyma þér þá bara ertu ekki nógu
merkilegur zkomm omgz og við bara woohoo ekert smá feitt djamm og
ég varð svo bliiiiiindfull é meina sko farðu á flass.net þá sérðu
mig á nærbussunum í bara wet fight við eikkerja tussu sem stal
bjórnum mínum og é bara ómægad ertekki að djóka!!!!!!!! svo kom ég
heim kl 10 um morguninn og pissaði og bara woow þetta var geggjað
zo zkomm bra á laugardaginn var þa auddað bara geggjað partí um
kvöldið og é bara omgz what a party, ég pissaði á mig tvisvar en þa
var alltílæ etta var bara that kind of party svo fórum vi útí bæ og
ég slummaði bra alla omgz thust heloooooooooo omgz híhí ég er so
flippuð!!!!! á sunnudaginn leigði ég spólu og fékk mér sleikjó
markmið vikunnar: fá anorexíu verða krakkhóra nota fleiri zetur í
ztaðinn fyrir S
»
10.03.2007 23:08:23 / helgalara
»
24.02.2007 16:29:54 / helgalara
Þar sem ég er letingi og nenni ekki að blogga strax þá ákvað ég
að setja inn nokkra krossa 
Ég
hef…
(   reykt sígarettu - aldrei einu sinni tekið
smók!
( ) klesst á bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(X) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
(X) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá
foreldrunum
(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(X) logið að vini/vinkonu
(X) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(X) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi (ekki alvarlega
sko)
(X) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
( ) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á
internetinu
(X) farið á tónleika
(X) tekið verkjalyf
(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(X) legið á bakinu úti og horft á skýin
(X) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
(X) flogið flugdreka
(X) byggt sandkastala
(X) hoppað í pollum
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(X) rennt þér á sleða
(X) svindlað í leik
(X) verið einmana
(X) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(X) horft á sólarlagið
(X) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(X) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(X) verið misskilin/n
(X) klappað hreindýri/geit/kengúru – Geitinni Heiðu
(X) farið yfir á rauðu ljósi – með öðrum þar sem ég er ekki með
bílpróf
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) verið með spangir/góm
(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(X) fengið deja vu-
( ) dansað í tunglskininu
(X) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(X) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(X) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(X) verið týnd/ur
(X) synt í sjónum
(X) fundist þú vera að deyja
(X) grátið þig í svefn
(X) farið í löggu og bófa leik
(X) litað nýlega með vaxlitum
(X) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera
ekki
(X) hringt símahrekk
( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um
nefið á þér
(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(X) dansað í rigningunni
(X) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(X) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt
um
(X) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú
komst óboðin/n í
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta
(X) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
»
09.01.2007 14:35:09 / helgalara
Já verið sæl og blessuð.
Nú þegar nýtt ár er gengið í garð þá er tilvalið til þess að
blogga. Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Skólinn hætti,
vinnan byrjaði, jólin komu og vinnan hélt áfram, áramótin komu og
svo var skólinn að byrja aftur fyrir stuttu.
Mér gekk alveg ágætlega í prófunum. Mér gekk vel í tungumálunum
eins og alltaf og er ég með mínar tíðu áttu í ensku og
svo í þýsku. Hins vegar er markmið mitt að bæta mig í öllum
fögum og veit ég að ég á létt með að hækka þessar áttur í 9
bara með því að byrja að læra heima í ensku og
læra enn betur í þýsku. Félagsfræðin var ágæt en ekkert til
að hrópa húrra fyrir...ég fékk 7 og er staðráðin í að hækka mig í 8
á þessari önn.
Svo er það minn veikleiki....stærðfræði og eðlisfræði. Mér gekk
ekki vel í því, eins og mátti kannski búast við, en ég
slapp með 4 í stæ. og 5 í eðló sem ég er sátt með (svo lengi sem ég
fell ekki þá er ég sátt). En auðvitað þarf ég líka að hækka
mig í þeim fögum og kannski einbeita mér svolítið að þeim. En hins
vegar gekk mér hryllilega í sögu!! Miðað við það að ég er á
félagsfræðibraut og að saga sé eitt af aðalfögunum þá fékk ég
virkilega lágt í henni....eða 5! Það er sagan sem ég verð hvað
helst að taka mig á, og er ég alveg staðráðin í því að ég geti
það! Hins vegna er eitt sem gerði það á verkum að mér gekk
svona illa í prófinu...reyndar hefði ég auðvitað getað
lært betur undir prófið en aðal vandinn við mig er að ég
er alltaf svo lengi þegar ég tek próf. Þegar próftíminn í var
búinn í sögu þá var ég ekki næstum því búin með prófið! Ég
skirfaði og skrifaði og skrifaði eins og ég gat þangað til að
kennarinn sem sat yfir reif af mér prófið! En niðurstaðan var
sú að ég náði ekki einu sinni að byrja á ritgerðinni sem var
seinust og gilti 20%. Ég átti reyndar við þetta sama vandamál að
stríða í félagsfræðinni, að geta ekki klárað vegna tímaskorts.
En vonandi gengur þetta betur á vorönninni. Ég er búin að fara
til námsráðgjafa og er á leiðinni í að taka próf til að
athuga hvort ég sé með lestrar- eða skriftarörðuleika. Ef það kemur
í ljós fæ ég meiri tíma í næstu prófum. 
Svo kom "jólafríið" og vinnan bryjaði. Ég hjálpaði mömmu að koma
jólunum heim og svo vann ég mest allt fríið og þá líka á stórum
dögum. Svo kom aðfangadagur einu sinni enn Hann var að vísu
sérstakur í þetta skiptið því að öll fjölskyldan var saman. En
aðfangadagur var svona...Ég vaknaði um morguninn og fór að
vinna...það var allt brjálað og allir á seinustu stundu að kaupa
inn eins og íslendingar eru vanir að gera. Svo lokuðum við klukkan
4 og þá fór ég heim að hjálpa með matinn og svoleiðis brúsk. Áður
en leið á löngu voru Andrea, Inga, Árni, Snædís, Elísabet og pabbi
komin og tilbúin til að raða pökkunum undir jólatréð og borða.
Pakkaflóðið var svakalegt! Enda tókum við nokkra klukkutíma í það
að opna gjafirnar. En yfirleitt fengum við marga pakka um
jólin en núna þar sem að tveir krakkar hafa bæst í hópinn
fengum við yfirgengilega mikið að gjöfum!! Þegar Aron kom
í heimsókn seinna um kvöldið sagðist hann aldrei hafa séð svona
marga pakka, fyrir utan þá sem liggja undir jólatrénu í
kringlunni En öll fjölskyldan borðaði saman
jólamatinn og fannst mér það mjög gaman þar sem það gerist aldrei
lengur, og á ekki eftir að gerast aftur því að næstu jól fara
allir örugglega í sitthvora áttina. Árni og Inga eru
náttúrulega komin með fjögurra manna fjölskyldu þannig að þau
verða örugglega bara ein saman næstu jól og hver veit hvort
að Andrea verði með Garðari næstu jól. Pabbi verður auðvitað ekki
hjá okkur þannig að kannski verða það bara ég og mamma
næst...annars veit ég ekkert hvernig þetta verður með mig og Aron,
hvort við verðum saman um jólin eða í sitthvoru lagi. En við þurfum
ekki að ákveða það strax þar sem það er ágætur tími í jólin 
Svo var hið árlega jólaboð á jóladag. Það er alltaf haldið
hjá henni ömmu en hún var búin að halda það í mörg ár og var orðin
frekar þreytt á því þannig að Viðar frændi og Sigga buðu sig
fram í þetta skipti. Jólaboðið var bara voðalega skemmtilegt eins
og þau eru yfirleitt því það er alltaf athyglisvert að vita
hvað gerist þegar þessi skemmtilegi hópur hittist.Þetta árið voru
auðvitað allir að dást af henni litlu Elísabetu Þórhöllu
sem mér finnst ekkert skrítið þar sem hún er svo
falleg og sæt stúlka og alltaf rosalega brosmild.
Svo komu áramótin góðu. Ég var að vinna á gamlársdag til 6 (því
þá lokaði) og svo fór ég heim að gera mig tilbúna fyrir matinn.
Pabbi, ég, Inga, Árni, Snædís og Elísabet vorum saman um áramótin
og borðuðum öll saman steiktar svínakótelettur í raspi (náttúrulega
fyrir utan hana Elísabetu sem fékk ljúffenga mömmumjólk) En eftir
matinn horfðum við á skaupið og fórum svo að sprengja og
vorum svolítinn tíma að því þar sem pabbi missir sig alltaf í
gamaninu þegar við kaupum flugelda. Reyndar keyptum við fyrir minna
þetta árið en við höfum yfirleitt gert því að Inga var að reyna að
stoppa pabba í æðinu. En við sprengdum upp flugelda fyrir góðar
50.þús krónur og voru allir glaðir og
hamingjusamir.Pabbi hafði voðalega gaman af þessu og
þurfti alltaf að taka myndir af öllum þegar þeir kveiktu í
sprengjunum. Árni hafði það voðalega gaman við að sprengja alla
litlu hlutina...eins og froskana, og hann var eins og lítill krakki
við það. Snædís er auðvitað lítill krakki þannig að hún skemmti sér
bara eins og lítill krakki. Elísabet Þórhalla var mjög heilluð af
öllum litunum og skæru ljósunum og starði dolfallin á flugeldana.
Ég og inga vorum þarna líka að njóta okkar og horfðum á
ljósadýrðina lékum okkur að sprengjum og tókum stundum tíma þar sem
við hoppuðum upp í loftið og kölluðum "váááááá". Þegar
allt gamanið var búið og allir voru orðnir þreyttir fór
ég í partí með Aroni Það var mjög gaman
í partíinu... í endan á teitinu var ég þó farin
að hugsa um einhverja stelpu sem hafði drukkið alltof mikið. Ég var
með henni á klósettinu að halda hárinu hennar og vera hjá henni og
gaf henni svo vatnsglas og lét hana leggjast í sófan til þess að fá
hana til að slaka og reyna að sofna...en allavegana....Svo fórum
við Aron heim um 7 leitið.
Á nýársdag vaknaði ég þunn og mætti í vinnunna um morguninn. Það
var ekkert sérlega gaman, en svona er þetta......10-11 alltaf
opið............10-11 þegar þér hentar.
Svo nú fyrir stuttu var ég að byrja aftur í skólanum og er ég
bara frekar ánægð með það. Eins og ég sagði í byrjun bloggsins þá
þarf ég náttúrulega að vera duglegri þessa önn og vona ég innilega
að mér gangi þá betur í næstu prófum. Annað sem ég þarf að
vera dugleg við er að hafa meira samband við vinina mína. Ég
sakna þess mjög mikið að fíflast og tala við
vinkonur mínar. Þið megið endilega hringja í mig og ég
skal bjalla í ykkur
En nú finnst mér þetta nóg komið. Ég vona að þið séuð ánægð með
þetta langa framlag mitt! See you later aligator..
Helga Lára
»
03.12.2006 17:54:10 / helgalara
Nei þetta er heldur ekki Helga..
Er það bara ég eða er 90% blogganna á þessarri síðu frá vinum og
kærustum Helgu að segja henni að blogga? 
Allavega...
Helga Lára Sigurðardóttir!
Viltu blogga á
stundinni!
(Annars verður mér að mæta! )
Hilsen, Bryndís frænka ;***
(Helga ég elska þig, þú ert yndi
:****)
l:* - úaaa aúa úaaaa 
»
24.10.2006 19:20:17 / helgalara
Nei það er EKKI Helga að blogga, sem er reyndar ekkert nýtt 
En tilgangur minn er einn og það er til að auglýsa mína eigin síður
sem ég er með ásamt þremur vinum mínum.
Síðan er semsagt www.blog.central.is/gedveikir
kv. Ronney McMara (gæludýrið hennar Helgu)
p.s. HELGA! F*A*R*Ð*U A*Ð* B*L*O*G*G*A*
»
18.09.2006 14:09:10 / helgalara
Veriðið sæl og blessuð elskurnar mínar 
Nú hef ég ekki bloggað í svolítinn tíma og fyrst ég hangi bara
hérna í skólanum og er ekki að gera neitt merkilegt ákvað ég er
blogga.
Það helsta í fréttum er það að skólinn er byrjaður,
busunin er búin og einnig þetta blessaða busaball. En þetta
var alveg ágætt ball. Ég var svoooooolítið full hehehe. En allt
var gott og blessað og það voru engin slagsmál hjá MS-ingum (svo ég
viti).
Svo er annað nýtt í fréttum, og það er að ég er komin með
gleraugu....já þið lásuð rétt Helga Lára er komin með gleraugu. Og
það gleraugu sem hún á alltaf að ganga með! Ég trúi því varla
sjálf! En ég er með -1 á hægra auga og -2 á vinstra auganu þannig
að ég á víst að ganga með gleraugu. En þetta eru alveg ágæt
gleraugu og þau hafa einn mjög góðan kost! Og þessi kostur er að
þau lyftast ekki upp þegar ég brosi!! Ég hef aldrei átt eða gengið
með sólgleraugu útaf þeirri staðreind að þegar ég brosi þá lyftast
gleraugun alltaf með kinnunum. En þessi gleraugu gera það ekki,
þannig að ég er ánægð 
Svo er annað sem ég verð að segja frá! Í dag er 18.
september, sem þýðir að í dag á barnið hennar Ingu Betu að koma í
heiminn Svo er bara spurning hvort að barnið komi í dag eða
lætur okkur bíða meira eftir sér. Mér finnst bara að það ætti að
drífa sig í heiminn. Allir sitja spenntir við síman í von um það að
fá símtal um það að Inga sé komin með hríðir! Það er eiginlega
bara eins gott að þetta barn fari að drífa sig! Allt er tilbúið
fyrir það. Inga og Árni eru búin að kaupa og fá gefins alls konar
barnadót í nýja húsið sitt. T.d. eins og skiptiborð, vöggu,
barnarúm, fullt af fötum og bara allt saman.
En nú veit ég ekki hvað annað ég á að segja. Mér líður
bara vel og Aroni líka. Við eyðum svona flestum stundum saman
þannig að það er eins gott fyrir ykkur að tala við mig og hitta mig
áður en ég fæ leið á honum hehehehehehe Panntið bara tíma hjá
aðstoðarmanninum/ritaranum mínum. hehehe
En við þá sem ég hef ekki hitt lengi eða hitti ekki eins mikið
og ég ætti, segi ég bara: Hey þú! komd'í bíó!
En nú er ég hætt þessu. Allar skoðanir eru vel þegnar!!
Bless bless og takk fyrir mig. 
Helga Lára
»
30.08.2006 02:17:49 / helgalara
Sæl,
Nei þetta er ekki hún Helga okkar að blogga, heldur Aron
(kærastinn hennar fyrir þá sem ekki vita). Ég veit ekki hvað ég er
að gera hérna en ég var í sakleisi mínu að giska á notendanafn og
lykilorð og það vildi svo heppilega til að hún Helga er dáldið
fyrirsjáanleg
Það sem er búið að vera að gerast í lífi Helgu er það að hún er
búin að vera að vera í skólanum vera með mér og síðan aðeins meira
með mér... Eeeeen ég held að hún fari nú að fá leið á mér og skipa
mér heim til mín að sofa einn og þá getið þið kæru aðdáendur Helgu
rifið hana í ykkur og trallað hressilega með henni Ekki það að
það sé ekki hægt með mér en þið þekkið mig ekkert (eða voða lítið)
þannig að þið hafið líklega ekki áhuga á því.
En nóg komið af rugli og bulli í mér... Bæó!
kv. Aron a.k.a. Rooney McMara
»
18.07.2006 16:05:35 / helgalara
Hæhæ og halló
Helga hér! Já ég veit, núna hugsið þið *it´s a miracle* og
já...það er nokkurnveginn satt hjá ykkur. Ég ætlaði ekki einu sinni
að blogga, veit ekki afhverju ég gerði það. Hef ekki frá miklu að
segja.
Já ef ég segi ykkur hvernig sumarið hefur verið hjá mér þá er
það í grófum dráttum svona: vinna, argentína steikhús, vinna,
vinna, aron, vinna, vinna, tívolí. Já mikið rétt
Ég skal bara segja ykkur frá skemmtilegu hlutunum Við
systurnar vorum svo duglegar í vinnunni okkar þannig að við fengum
að gjöf frá 10-11 10.000 krónur í inneign hjá arentínu
steikhús...hvor. Þannig að við vorum með 30.000 krónur, sem er
þónokkuð mikið. Þá var ekkert annað að gera en að skella sér á
argentínu. Við fórum á argentínu það örlagafulla kvöld 1.júlí (sem
var líka 4.mánaðar afmæli okkar arons, takk fyrir) Við mættum á
staðinn og..váá hvað hann er fínn! Og svo var maturinn líka
góður....namm nautalundir *sleeef*
En það féllu ekki allir í kramið á þessum stað. Þjóninn okkar
var ekkert alveg sáttur við okkur, eða reyndar var hún ekki sátt
við hann Garðar, kærastann hennar Andreu. Hann var eitthvað að
grínast í henni og hún tók því ekki vel. Þetta var samt saklaust
grín hehe...sko málið var þannig að Andrea og Garðar fengu vín
með matnum (fjögur vínglös með fjórum réttum). þegar þjónninn kom
með vínið þá lét hún Andreu alltaf smakka, þannig að Garðar hélt að
henni væri eitthvað illa við hann. Svo þegar hún var að koma með
nýtt kók handa honum Aroni mínum þá sagði Garðar eitthvað svona
"hvað, ætlaru ekki að láta hann smakka fyrst" hehehehhehe! Mér
fannst það fyndið en hún hló ekki! Hún varð eiginlega bara svolítið
fúl. Þá fórum við að tala um það okkar á milli að það mætti ekki
vera silly á svona stöðum. Og að það ætti að vera svona tunna í
innganginum sem stæði á "leave your sillyness here". Hehehe Svo fór
árni að tala um það að maður mætti samt ekki gleyma kjánaskapnum í
tunnunni því að þegar maður þyrfti að koma að sækja hann seinna
myndi einhver starfsmaður koma til manns og segja "já átt þú þennan
bláa? hann hefur verið að angra fólk á leið sinni út" hehehe...æjj
þetta var bara skemmtilegt kvöld.
Svo fór ég um daginn með Bryndísi og Maríönnu í tívolíið.
Úff hvað það var gaman! Ég elska tívolí! Enda er ég svo mikill
adrenalínsjúkklingur! Ég fór þrisvar í bollana sem var náttúrulega
skemmtilegast! Hehe annað skiptið var svooo gaman! Við snérumst svo
mikið að við gátum ekki gert neitt annað en að liggja í bollunum og
skellihlæja! Reyndar leið Maríönnu dálítið illa eftir sá ferð
þannig að hún sleppti því að fara í þriðja skiptið. En þetta ver
geggjað stuð Alltaf gaman að fara í tívolí!
Já og svo styttist óðum í skólann. Veit ekki hvort ég
hlakka til eða ekki. Ég vona allavegna að það verði
skemmtilegra í ár en það var í fyrra. Allaveganga
hef ég núna hann Aron til þess að halda mér félagsskap og Bryndís
og Tinna frænkur mínar eru báðar að koma í skólann þannig að ég er
viss um að það verði miklu skemmtilegra! Hlakka til að fara á
skólaböll með frænkunum mínum! Jesús hvað það verður gaman! Vona
bara að ég verði í skemmtilegri bekk þetta árið 
En allavegna...ég þarf að hætta núna, er að fara að vinna eftir
klukkutíma 
bless bless
»
05.07.2006 14:22:58 / helgalara
Ég er ljóðrænt knyppi,
enginn fjandans hippi.
Ég veit um dónó orð,
sem jafnast á við morð,
sem rímar við hippi,
og það er TIPPI!
Sjúmmaberarídarí sjúmmabírei. Dúdl snúdl kúdl fúdl
búmmbarífei.
Ég ætla að fara að blogga,
ég ætla að fara í rass,
ég ætla að fara að blogga,
ég ætla að reykja hass.
Hans, Hans, Stína, Stína, gúmmíhæna fer til Kína,
Stína, Stína, Bergur, Bergur, drulla eða eyrnamergur,
Bergur, Bergur, Jói, Jói, mér er sama þótt það snjói,
Jói, Jói, Helga, Helga, ég hef þrifið þúsund dverga.
Ætla ég að hætta þessu?
Ætla ég að mæta í messu?
Ætla ég að þrífa klessu?
Ljóð, ljóð, syndaflóð
blátt, gult, hvítt, rautt, rautt blóð.
Stúlka þessi er orðin rjóð 
Ísland er hin merka þjóð.
Ljóð er ei ljóð ef það rímar ei,
nei, nei, nei, nei, nei, nei.
ÉG FRUSSA! TUSSA! HELVÍTIS HLUSSA!
jaaaaa...
Kveðja, HELGA (eða hvað?)
»
16.06.2006 18:52:26 / helgalara
»
16.05.2006 23:12:17 / helgalara
Hehe já sumir eru búnir að vera að biðja um blogg hérna....ég
ætla ekki að blogga eitthvað svakalega en ég ætla að segja ykkur
eitt:
Ég svaf hjá lampa af því mér finnst egg
góð
skemmtið ykkur vel 
Veldu mánuðinn sem þú fæddist-
Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaðiá
Veldu núna
afmælisdaginn þinn-
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asískum skiptinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara
Veldu Þriðja stafinn í
eftirnafninu þínu -
A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að ég þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Afvþví mér finnst egg góð
H- Afþví að ég er á sýru
I- Afþví ég misteig mig
J- Afþví ég er með vörtu
K- Afþví mér líkar Cheer
L- Afþví að ég var skökk/skakkur
M- Afþví ég var full/ur
N- Afþví að mamma sagði mér að gera það
O- Afví ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Afví að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Afþví að ég elska náttfata party
W- Afþví að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Afþví að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahárum
Kveðja, Helga Lára
»
03.05.2006 08:33:21 / helgalara
Jæja kæru
Landsmenn!!
Ég
ákvað að brjótast inná síðuna hennar Helgu því að mér er farið að
langa í blogg!! Og ég er alveg 99,72 % viss um það að það vilja
fleiri fá blogg en ég.... og núna þá er þetta blogg
Áróðursblogg
ÁFRAM HELGA.... KOMA SVO.... ÞÚ GETUR ÞETTA....
B L O G G A
Jæja ég sendi Helgu mínar
baráttukveðjur við letinni sem er að hrjá hana!!
-Erla Björk sem vill Blogg frá Helgu
»
20.04.2006 16:33:43 / helgalara
Ég ætla sko að blogga sko því ég er svo ógeðslega dugleg sko við
það eins og venjulega. Þetta var allt og sumt. Takk
fyrir mig
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|